Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 01. september 2024 15:59
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu mörkin: Diaz og Salah að fara illa með Man Utd
Mynd: EPA

Liverpool er með tveggja marka forystu í hálfleik í stórleik helgarinnar gegn Man Utd á Old Trafford. Luis Diaz skoraði bæði mörk liðsins.

Trent Alexander-Aronld hélt að hann hafi komið Liverpool yfir snemma leiks en markið var dæmt af vegna rangstöðu.


Mohamed Salah átti fyrirgjöf eftir góða sókn Liverpool sem Luis Diaz skallaði í netið og kom liðinu yfir þegar rúmlega hálftími er liðinn af leiknum.

Það var sama uppskrift að seinna markinu. Diaz vann boltann af Casemiro sem taldi að brotið hafi verið á sér, Diaz sendi boltann á Salah sem sendi aftur og Diaz skoraði og kom Liverpool í 2-0.

Sjáðu fyrra mark Diaz
Sjáðu seinna mark Diaz


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner