Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
   sun 01. september 2024 12:07
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ugarte tekur við treyjunúmerinu af Sancho
Mynd: Manchester United

Manuel Ugarte hefur fengið treyjunúmer hjá Manchester United en hann mun bera númer 25 aftan á treyjunni sinni.

Jadon Sancho var í treyju númer 25 á síðustu leiktíð en hann færði sig um set í sumar og gekk til liðs við Chelsea á lokadegi félagaskiptagluggans.


Ugarte gekk til liðs við United á lokadegi félagaskiptagluggans frá PSG en enska félagið borgaði 50 milljónir evra fyrir þennan 23 ára gamla miðjumann.

Hann verður ekki í leikmannahópi liðsins sem mætir Liverpool í dag þar sem United tókst ekki að skrá hann á réttum tíma.


Athugasemdir
banner
banner
banner