Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 02. september 2024 10:38
Elvar Geir Magnússon
Antonee Robinson orðaður við Man Utd
Antonee Robinson.
Antonee Robinson.
Mynd: Getty Images
Antonee Robinson vinstri bakvörður Fulham er orðaður við Manchester United.

Í slúðurpakkanum í morgun var fjallað um frétt Express þess efnis United væri að horfa til bandaríska landsliðsmannsins en talið er að hann sé falur fyrir um 30 milljónir punda.

Robinson er 27 ára bandarískur landsliðsmaður.

Luke Shaw og Tyrell Malacia hafa báðir verið meiðslahrjáðir og ekki geta spilað í upphafi tímabilsins.

Robinson hefur hinsvegar farið vel af stað undir stjórn Marco Silva og átt tvær stoðsendingar í fyrstu þremur leikjum Fulham á tímabilinu.

Áður hefur verið fjallað um áhuga stærri félaga á honum, meðal annars Manchester City, Inter og AC Milan.
Athugasemdir
banner
banner
banner