Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
   mán 02. september 2024 09:44
Elvar Geir Magnússon
Brynjar Ingi inn og svo aftur út úr landsliðinu - Júlli Magg inn
Icelandair
Brynjar Ingi Bjarnason.
Brynjar Ingi Bjarnason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Júlíus Magnússon.
Júlíus Magnússon.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brynjar Ingi Bjarnason, sem var kallaður inn í landsliðshópinn um helgina vegna meiðsla Sverris Inga Ingasonar, er aftur farinn út úr hópnum.

Það er vegna meiðsla sem hann hlaut í leik með HamKam í Noregi, í 1-1 jafnteflisleik gegn Sandefjord í gær.

Í stað hans hefur miðjumaðurinn Júlíus Magnússon, leikmaður Fredrikstad, verið kallaður inn í hópinn. Júlíus, sem er fyrrum leikmaður Víkings, hefur spilað fimm landsleiki.

Ísland mætir Svartfjallalandi og Tyrklandi í Þjóðadeildinni. Ísland mætir Svartfjallalandi á Laugardalsvelli á föstudaginn og Tyrklandi í Izmir eftir viku. Þetta eru tveir fyrstu leikir Íslands í keppninni, en Wales er fjórða liðið í riðlinum.

Markverðir:
Elías Rafn Ólafsson - FC Midtjylland - 6 leikir
Hákon Rafn Valdimarsson - Brentford - 11 leikir
Patrik Sigurður Gunnarsson - K.V. Kortrijk - 4 leikir

Varnarmenn:
Alfons Sampsted - Birmingham City - 21 leikur
Valgeir Lunddal Friðriksson - BK Häcken - 10 leikir
Guðlaugur Victor Pálsson - Plymouth Argyle F.C. - 44 leikir, 1 mark
Kolbeinn Birgir Finnsson - Utrecht - 12 leikir
Hjörtur Hermannsson - Carrarese - 27 leikir, 1 mark
Daníel Leó Grétarsson - SønderjyskE - 18 leikir
Logi Tómasson - Strømsgodset - 3 leikir

Miðjumenn:
Jóhann Berg Guðmundsson - Al-Orobah - 93 leikir, 8 mörk
Arnór Sigurðsson - Blackburn Rovers - 33 leikir, 2 mörk
Gylfi Þór Sigurðsson - Valur - 80 leikir, 27 mörk
Arnór Ingvi Traustason - IFK Norrköping - 58 leikir, 6 mörk
Jón Dagur Þorsteinsson - Hertha BSC - 37 leikir, 5 mörk
Hákon Arnar Haraldsson - LOSC Lille - 19 leikir, 3 mörk
Willum Þór Willumsson - Birmingham City - 9 leikir
Stefán Teitur Þórðarson - Preston North End - 20 leikir, 1 mark
Mikael Egill Ellertsson - Venezia FC - 15 leikir, 1 mark
Mikael Neville Anderson - AGF - 28 leikir, 2 mörk
Ísak Bergmann Jóhannesson - Fortuna Düsseldorf - 27 leikir, 3 mörk
Júlíus Magnússon - Fredrikstad - 5 leikir

Sóknarmenn:
Orri Steinn Óskarsson - FC Köbenhavn - 8 leikir, 2 mörk
Andri Lucas Guðjohnsen - K.A.A. Gent - 24 leikir, 6 mörk


Landslið karla - Þjóðadeild
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Tyrkland 2 1 1 0 3 - 1 +2 4
2.    Wales 2 1 1 0 2 - 1 +1 4
3.    Ísland 2 1 0 1 3 - 3 0 3
4.    Svartfjallaland 2 0 0 2 1 - 4 -3 0
Athugasemdir
banner
banner
banner