Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
   mán 02. september 2024 09:54
Elvar Geir Magnússon
Jamal Lewis á leið til Sao Paulo
Mynd: EPA
Vinstri bakvörðurinn Jamal Lewis er á leið frá Newcastle til brasilíska stórliðsins Sao Paulo.

Þessi 26 ára leikmaður kom til Newcastle frá Norwich 2020 en hann er nú í Brasilíu til að ganga frá þessum óvæntu vistaskiptum.

Lewis verður því seinn til mót við Norður-írska landsliðið sem er að fara að mæta Lúxemborg og Búlgaríu í Þjóðadeildinni.

Lewis náði ekki að festa sig í sessi í liði Newcastle og hefur aðeins leikið 36 leiki í búningi félagsins. Hann var lánaður til Watford á síðasta tímabili..
Athugasemdir
banner
banner