Valur fór í heimsókn vestur í bæ í 9. umferð Bestu-deildar karla fyrr í kvöld, þar sem KR tók á móti þeim. KR byrjaði leikinn frábærlega og voru komnir 2-0 yfir eftir 7 mínútur.
Eftir það sneru Valsarar taflinu við og skoruðu fjögur mörk í fyrri hálfleik. Í síðari hálfleik róaðist leikurinn til muna en bæði lið skoruðu sitthvort markið, lokatölur 3-5 fyrir Völsurum.
Tryggvi Hrafn skoraði tvö mörk Vals í kvöld og mætti í viðtal eftir leik.

Lestu um leikinn: KR 3 - 5 Valur
„Valur-KR eru alltaf risaleikir, skemmtilegustu leikirnir. Góð mæting, mikill hiti og mikið af mörkum eins og í dag. Mjög skemmtilegt og sáttur með stigin 3."
„Þetta var hálffurðulegt. Við erum 2-0 undir eftir 5 mínútur en við erum svekktari með að vera ekki með stærri forystu í hálfleik en tveggja marka í hálfleik. Sem er hálffurðulegt útaf fyrir sig."
„Skoraði tvö átti sennilega að bæta við þriðja markinu í fyrri hálfleik. Maður er ekki búinn að vera skora í öllum leikjum í upphafi móts þannig maður tekur þessu."
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir