Argentína og Ekvador mætast í 8-liða úrslitum Copa America í Bandaríkjunum í nótt.
Lionel Messi, aðalstjarna argentínska liðsins, var ekki með í síðasta leiknum í riðlakeppninni og er óvíst hvort hann verði klár fyrir leikinn gegn Ekvador.
Messi æfði með liðinu í gær en Lionel Scaloni, þjálfari liðsins, var óviss um þátttöku hans.
Argentína er ríkjandi meistari í keppninni og samtals unnið hana fimmtán sinnum en Ekvador hefur aldrei unnið.
Leikur dagsins:
01:00 Argentína - Ekvador
Athugasemdir