„Ég er mjög ósáttur við frammistöðuna, mjög ósáttur við 'effortið' og þetta er bara gjörsamlega óboðlegt," sagði Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, eftir 3-0 tap gegn ÍR í kvöld.
„Við förum til Njarðvíkur og vinnum 5-2 síðasta sunnudag. Og mætum svo svona til leiks í dag, það er óafsakanlegt. Ég þarf að líta inn og strákarnir þurfa að líta inn á við því þetta er ekki okkur sæmandi."
„Við förum til Njarðvíkur og vinnum 5-2 síðasta sunnudag. Og mætum svo svona til leiks í dag, það er óafsakanlegt. Ég þarf að líta inn og strákarnir þurfa að líta inn á við því þetta er ekki okkur sæmandi."
Lestu um leikinn: ÍR 3 - 0 Afturelding
„Ég tek ekkert af ÍR, þeir gerðu þetta mjög vel. Þeir eru vel þjálfað lið og hafa staðið sig vel í sumar. Við réttum þetta upp í hendurnar á þeim með því hvernig við spilum. Við hefðum getað spilað til miðnættis án þess að skora mark."
„Þetta var ekki gott."
Stöðugleikinn er ekki mikill hjá Aftureldingu, liðið hefur verið mikið upp og niður í sumar. Fyrir mót var Mosfellingum spáð sigri í þessari deild af fyrirliðum og þjálfurum en liðið er eftir þetta tap með 14 stig í sjötta sæti.
„Ég þarf að reyna að finna út úr þessu. Við höfum átt dúndurleiki í sumar og svo höfum við dottið niður á svona plan. Það er stöðugleikinn sem er að drepa okkur," sagði Magnús.
„Eftir fyrsta markið finnst mér of margir leikmenn gefast upp og það er ekki í boði. Það er ógeðslega sárt að horfa upp á það. Í síðasta leik erum við komnir í 2-0 og þeir jafna í 2-2, en við sýnum karakter eftir það. Núna gefast menn upp eftir eitt mark. Menn geta ekki valið sér leiki. Það er hálftími eftir þegar fyrsta markið kemur. Núna þurfa menn að líta í spegil og mæta í hvern einasta leik. Við þurfum að gera betur."
Arnar Daði Jóhannesson, ungur markvörður Aftureldingar, gerði stór mistök í leiknum.
„Hann tapaði ekki leiknum í dag, við gerðum það. Allir sem komu við sögu og við sem stöndum fyrir utan þetta. Við ógnuðum varla markinu þeirra í leiknum. Auðvitað á hann að gera betur í þessu augnabliki en það var svo margt annað sem var að."
Hægt er að sjá allt viðtalið í spilaranum hér að ofan þar sem Magnús ræðir meira um stöðu Aftureldingar.
Athugasemdir