Ítalska félagið Juventus er að undirbúa tilboð í hollenska miðjumanninn Teun Koopmeiners sem er á mála hjá Atalanta.
Juventus vill halda áfram að styrkja miðsvæðið fyrir komandi tímabil en það hefur þegar gengið frá kaupum á Douglas Luiz frá Aston Villa og þá er Khephren Thuram á leiðinni frá Nice.
Á næstu dögum mun Juventus leggja fram tilboð í Koopmeiners sem hefur verið í stóru hlutverki hjá Atalanta síðustu þrjú ár. Þetta segir Fabrizio Romano
Hollendingurinn er sagður áhugasamur um að fara til Juventus, en hann hefur einnig verið orðaður við Liverpool.
Koopmeiners, sem er 26 ára gamall, varð Evrópudeildarmeistari með Atalanta á síðustu leiktíð en hann skoraði fimmtán mörk og lagði upp sjö í öllum keppnum.
Athugasemdir