Fernandes og De Bruyne til Sádí-Arabíu? - Salah fær nýjan samning - Calafiori til Arsenal
banner
   fim 04. júlí 2024 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Marseille búið að bjóða í Greenwood
Mynd: EPA
Franska félagið Marseille er búið að leggja fram tilboð í Mason Greenwood, framherja Manchester United, en það er ítalski blaðamaðurinn Gianluca Di Marzio sem segir frá þessum fregnum.

Greenwood er 22 ára gamall en hann snéri aftur til United eftir lánsdvöl sína hjá Getafe.

Hann á ekki leið aftur inn í hóp Manchester United og hefur því félagið ákveðið að selja hann hæstbjóðanda.

Samkvæmt Di Marzio hefur Marseille formlega lagt fram 20 milljóna evra tilboð í Greenwood og er félagið sannfært um að það geti tryggt sér þjónustu hans.

Lazio er einnig talið vera í kapphlaupinu en þessi mál gætu ráðist á næstu sólarhringum.

Greenwood kom að fjórtán mörkum í 33 leikjum sínum með Getafe í La Liga á síðustu leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner
banner