Dalvíkingurinn Nökkvi Þeyr Þórisson byrjaði þriðja leik sinn í röð er St. Louis City vann San Jose Earthquakes, 2-0, í MLS-deildinni í nótt.
Nökkvi hefur verið að fá stærra tækifæri með liðinu í síðustu leikjum eftir að hafa þurft að verma stóran hluta tímabilsins á bekknum.
Hann var á skotskónum í síðasta leik og hélt sæti sínu í byrjunarliðinu. Nökkvi spilaði rúman klukkutíma í 2-0 sigrinum sem fleytti liðinu upp í 11. sæti Vestur-deildarinnar.
Dagur Dan Þórhallsson lék þá allan leikinn í 2-1 sigri Orlando City á Toronto.
Orlando er í 10. sæti Austur-deildarinnar með 24 stig, einu sæti frá umspili.
Athugasemdir