Jaden Philogene, leikmaður Hull City í ensku B-deildinni, mun líklega ekki ganga í raðir Barcelona í sumar en þetta segir ítalski fótboltafréttamaðurinn Fabrizio Romano á X.
Philogene er 22 ára gamall vængmaður sem kom að átján mörkum í B-deildinni á síðustu leiktíð.
Á dögunum var hann óvænt orðaður við spænska stórliðið Barcelona og hefur félagið átt í viðræðum við Hull, en nú er talið ólíklegt að hann sé á leið þangað.
Staðan er flókin og er því líklegast að hann fari í ensku úrvalsdeildina í staðinn.
Crystal Palace, Everton og Ipswich Town eru öll í baráttuna um þennan fyrrum leikmann U21 árs landsliðs Englands.
Athugasemdir