Sædís Rún Heiðarsdóttir og stöllur hennar í Vålerenga unnu Brann, 2-0, í norsku úrvalsdeildinni í kvöld.
Íslenska landsliðskonan byrjaði á bekknum hjá Vålerenga en kom inn á þegar lítið var eftir.
Natasha Moraa Anasi Erlingsson byrjaði einnig á bekknum hjá Brann en lék síðasta hálftímann.
Vålerenga er á toppnum með 39 stig en Brann í 3. sæti með 28 stig en Vålerenga hefur spilað einum leik meira en Brann.
Athugasemdir