Fiorentina 2 - 1 Lazio
0-1 Mario Gila ('41 )
1-1 Albert Gudmundsson ('49 , víti)
2-1 Albert Gudmundsson ('90 , víti)
0-1 Mario Gila ('41 )
1-1 Albert Gudmundsson ('49 , víti)
2-1 Albert Gudmundsson ('90 , víti)
Albert Guðmundsson skoraði bæði mörk Fiorentina í 2-1 sigri liðsins á Lazio í Seríu A á Ítalíu í dag, en hann var að leika sinn fyrsta leik með félaginu.
Landsliðsmaðurinn gekk í raðir Fiorentina frá Genoa á láni út tímabilið, en félagið mun kaupa hann á næsta ári ef ákveðnum skilyrðum er mætt.
Hann var að glíma við meiðsli í byrjun tímabils en lék sinn fyrsta leik í dag.
Fiorentina var marki undir í hálfleik eftir að Mario Gila kom boltanum í netið undir lok hálfleiksins en Albert kom inn í hálfleik og tók hann aðeins tvær mínútur að fiska vítaspyrnu.
Hann fór sjálfur á punktinn, sendi Ivan Provedel í vitlaust horn og skoraði.
Albert kom inn með mikil gæði og var besti maður Flórensarliðsins, en hann kórónaði frábæra frammistöðu sína með öðru vítaspyrnumarki undir lok leiks er Nuno Taveres braut á Dodo í teignum.
Frábær byrjun hjá Alberti sem náði í fyrsta sigur sinn á tímabilinu en liðið er með sex stig í 10. sæti eftir fimm leiki.
Albert Gudmundsson came on in the 2nd half, won a penalty, scored it, then scored another pen in the dying minutes.
— Uncle Sharma ????? ???? (@RSharmzz) September 22, 2024
In general he was levels above any Fiore players.
The star signing might finally ignite Fiorentina’s season ????????
pic.twitter.com/etBsXzECF0
Athugasemdir