Kristall Máni Ingason lagði upp annað mark sitt í dönsku úrvalsdeildinni á tímabilinu er SönderjyskE vann 2-1 sigur á Vejle í dag.
Kristall og Daníel Leó Grétarsson voru báðir í byrjunarliði SönderjyskE í dag.
Fyrrum Vikingurinn lagði upp fyrra mark SönderjyskE á 27. mínútu sem var önnur stoðsending hans á tímabilinu.
Hann var næst besti maður vallarins með 7,8 í einkunn en Daníel Leó fékk 7,2.
SönderjyskE er í 10. sæti deildarinnar með 8 stig.
Elías Rafn Ólafsson stóð þá í marki Midtjylland sem kom til baka og bjargaði stigi í 2-2 jafntefli, en liðið fór inn í hálfleikinn 2-1 undir. Ekki bætt úr skák að Sílemaðurinn Dario Osorio fékk að líta rauða spjaldið þegar hálftími var eftir.
Undir lok leiks bjargaði Aral Simsir stigi fyrir Midtjylland með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma og Midtjylland því áfram á toppnum með 21 stig.
Athugasemdir