Davies fer líklega til Real Madrid - Liverpool ræðir við Díaz - Varnarmaður Arsenal til Ítalíu?
   sun 22. september 2024 13:07
Haraldur Örn Haraldsson
Byrjunarlið Keflavíkur og ÍR: Renato Punyed og Bergvin Fannar settir á bekkinn
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leikur Keflavíkur og ÍR hefst á eftir klukkan 14:00. Þetta er seinni leikurinn í þeirra undanúrslitaeinvígi, en Keflaví vann fyrri leikinn 4-1. Byrjunarliðin hafa verið birt og þetta eru breytingarnar sem þjálfararnir gera.


Lestu um leikinn: Keflavík 1 -  3 ÍR

Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur gerir tvær breytingar á sínu liði. Það eru Stefán Jón Friðriksson og Rúnar Ingi Eysteinsson sem koma inn í liðið. Sindri Snær Magnússon sest á bekkinn en Axel Ingi Jóhannesson er í leikbanni.

Árni Freyr Guðnason þjálfari ÍR gerir þrjár breytingar á sínu liði. Það eru Bergvin Fannar Helgason, Ágúst Unnar Kristinsson og Renato Punyed sem setjast á bekkinn. Inn fyrir þá koma Guðjón Máni Magnússon, Gils Gíslason og Marteinn Theodórsson.


Byrjunarlið Keflavík:
1. Ásgeir Orri Magnússon (m)
5. Stefán Jón Friðriksson
8. Ari Steinn Guðmundsson
11. Rúnar Ingi Eysteinsson
20. Mihael Mladen
22. Ásgeir Páll Magnússon
24. Gunnlaugur Fannar Guðmundsson
25. Frans Elvarsson (f)
26. Ásgeir Helgi Orrason
28. Kári Sigfússon
50. Oleksii Kovtun

Byrjunarlið ÍR:
1. Vilhelm Þráinn Sigurjónsson (m)
6. Kristján Atli Marteinsson
11. Bragi Karl Bjarkason
13. Marc Mcausland
14. Guðjón Máni Magnússon
17. Óliver Elís Hlynsson
18. Róbert Elís Hlynsson
19. Hákon Dagur Matthíasson
25. Arnór Gauti Úlfarsson
26. Gils Gíslason
77. Marteinn Theodórsson
Athugasemdir
banner
banner
banner