Davies fer líklega til Real Madrid - Liverpool ræðir við Díaz - Varnarmaður Arsenal til Ítalíu?
   sun 22. september 2024 13:46
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Markalaust og tvö rauð spjöld í Íslendingaslag
Arnór Sigurðsson og Stefán Teitur eru miklir vinir og báðir Skagamenn, en þeir komu þó ekk við sögu í dag
Arnór Sigurðsson og Stefán Teitur eru miklir vinir og báðir Skagamenn, en þeir komu þó ekk við sögu í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Preston NE 0 - 0 Blackburn
Rautt spjald: ,Sam Greenwood, Preston NE ('42)Owen Beck, Blackburn ('89)

Preston North End og Blackburn Rovers gerðu markalaust jafntefli í 6. umferð ensku B-deildarinnar í dag.

Skagamennirnir Arnór Sigurðsson og Stefán Teitur Þórðarson eru á mála hjá félögunum. Arnór spilar með Blackburn og þá samdi Stefán við Preston í sumar.

Arnór var hins vegar fjarri góðu gamni og ekki í hópnum á meðan Stefán sat allan tímann á varamannabekk Preston.

Dómari leiksins var spjaldaglaður. Níu gul spjöld fóru á loft og tvö rauð, en Sam Greenwood var rekinn af velli í liði Preston undir lok fyrri hálfleiksins áður en Owen Beck, sem er á láni hjá Blackburn frá Liverpool, var vikið af velli undir lok leiksins.

Færin voru á báða bóga en liðunum tókst ekki að koma boltanum í netið. Blackburn er í 4. sæti með 12 stig en Preston í 21. sæti með 5 stig.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 West Brom 6 5 1 0 10 2 +8 16
2 Sunderland 6 5 0 1 13 4 +9 15
3 Burnley 6 4 1 1 13 4 +9 13
4 Sheffield Utd 6 4 2 0 9 3 +6 12
5 Blackburn 6 3 3 0 12 6 +6 12
6 Leeds 6 3 2 1 9 4 +5 11
7 Swansea 6 3 1 2 7 4 +3 10
8 Watford 6 3 1 2 10 9 +1 10
9 Oxford United 6 3 0 3 10 8 +2 9
10 Derby County 6 3 0 3 8 7 +1 9
11 Norwich 6 2 2 2 8 7 +1 8
12 Middlesbrough 6 2 2 2 6 5 +1 8
13 Bristol City 6 2 2 2 8 12 -4 8
14 QPR 6 1 4 1 8 9 -1 7
15 Luton 6 2 1 3 5 8 -3 7
16 Hull City 6 1 3 2 5 7 -2 6
17 Stoke City 6 2 0 4 4 9 -5 6
18 Millwall 6 1 2 3 9 9 0 5
19 Coventry 6 1 2 3 6 8 -2 5
20 Plymouth 6 1 2 3 5 10 -5 5
21 Preston NE 6 1 2 3 3 9 -6 5
22 Sheff Wed 6 1 1 4 6 12 -6 4
23 Portsmouth 6 0 3 3 7 13 -6 3
24 Cardiff City 6 0 1 5 1 13 -12 1
Athugasemdir
banner