Liverpool reynir aftur við Zubimendi - Isak til Arsenal - Wirtz á óskalista Bayern
   mið 04. maí 2016 15:00
Magnús Már Einarsson
Fylkir fær tvær frá Tævan (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Fylkir hefur fengið liðsstyrk fyrir átökin í Pepsi-deild kvenna í sumar en Man Ting Lin og Shu-o Tseng eru komnar til félagsins. Báðar eru þær frá Tævan.

Man Ting er 25 ára varnar eða miðjumaður. Hún hefur spilað með ASPTT Albi í Frakkandi en þar áður var hún á mála hjá Rayo Vallecano á Spáni.

Shu sem spilaði með Fylki í Pepsi-deildinni í fyrra er sóknar og miðjumaður en hún spilaði síðast í Frakklandi. Hún lék 16 leiki með Fylki í fyrra sumar og skoraði eitt mark.

Vika er í að keppni hefjist í Pepsi-deild kvenna en Fylkir fær þá Val í heimsókn.
Athugasemdir
banner
banner