Heimir Hallgrímsson, þjálfari Jamaíka, stýrði öðrum leik sínum í dag er liðið gerði 1-1 jafntefli við Kamerún.
Kamerún undirbýr sig af krafti fyrir HM í Katar og var þetta því hluti af undirbúningnum fyrir mótið.
Heimir stýrði fyrsta leik sínum gegn Argentínu í lok september í 3-0 tapi.
Hann stýrði svo liðinu öðru sinni í dag gegn Kamerún og gerði 1-1 jafntefli. Justin McMaster kom Jamaíka yfir á 60. mínútu en Kamerún jafnaði tæpu korteri síðar.
Kamerún er að undirbúa sig fyrir HM í Katar sem hefst eftir ellefu daga.
Athugasemdir