Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 09. nóvember 2022 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hörðustu stuðningsmenn Bayern: Khalid og félagar, farið til fjandans
Mynd: EPA
Hörðustu stuðningsmenn þýska stórveldisins Bayern München sendu skýr skilaboð í gær eftir ummæli frá sendiherra HM í Katar í samtali við þýska sjónvarpsstöð.

Mikið hefur verið fjallað um mannréttindabrot í Katar og þann mikla fjölda verkamanna sem hafa látið lífið við að byggja leikvanga og önnur mannvirki fyrir mótið.

Í Katar er samband einstaklinga af sama kyni bannað og einnig er fræðsla um samkynhneigð skilgreind sem glæpur.

Skipuleggjendur hafa ítrekað haldið því fram að öllum stuðningsfólki sé boðið á mótið og það verði öruggt á meðan mótinu stendur. En núna - þegar stutt er í fyrsta leik - þá hefur sendiherra fyrir mótið stigið fram opinberlega og lýst samkynhneigð sem „skemmd í huganum".

„Fólk verður að virða okkar reglur," sagði Khalid Salman, fyrrum landsliðsmaður Katar og sendiherra fyrir mótið. „f hverju er samkynhneigð bönnuð? Því það er skemmd í huganum."

Hörðustu stuðningsmenn Bayern svöruðu þessum ummælum með borða í gær. Á borðanum stóð: „Skemmd í huganum? Khalid og félagar, farið til fjandans."

Hér fyrir neðan má sjá mynd af borðanum.


Athugasemdir
banner
banner
banner