Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 09. nóvember 2022 21:33
Brynjar Ingi Erluson
Nathan Jones búinn að ná samkomulagi við Southampton
Nathan Jones
Nathan Jones
Mynd: Getty Images
Nathan Jones, stjóri Luton Town, hefur náð samkomulagi við Southampton um að taka við liðinu en þetta kemur fram í Guardian í dag.

Ralph Hasenhüttl var látinn fara á dögunum og hefur Southampton unnið að því að finna arftaka hans.

Félagið náði samkomulagi við Luton Town um að greiða 2,5 milljónir punda til að fá Nathan Jones.

Southampton hefur síðustu daga rætt við Jones um að taka við liðinu og nú er búið að ná samkomulagi en hann verður kynntur á allra næstu dögum.

Jones hefur stýrt Luton síðustu tvö ár og kom liðinu í umspilið í ensku B-deildinni á síðustu leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner