Keflavík vann í gær 1-2 útisigur gegn ÍBV í Pepsi Max-deild kvenna í gær. Það var atvik sem vakti mikla athygli í leiknum þegar Liana Hinds fékk einungis gult spjald fyrir að slá leikmann Keflavíkur í leiknum.
„Heppin að sleppa með rautt þarna, slær í átt að Arndísi," var skrifað í textalýsingu frá leiknum.
Sjá einnig:
Sjáðu atvikið: Liana Hinds stálheppin að sleppa með gult
„Heppin að sleppa með rautt þarna, slær í átt að Arndísi," var skrifað í textalýsingu frá leiknum.
Sjá einnig:
Sjáðu atvikið: Liana Hinds stálheppin að sleppa með gult
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 2 Keflavík
Fótbolti.net ræddi við Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari Keflavíkur, ræddi við Fótbolta.net um leikinn í dag.
Lífsnauðsynlegur sigur
„Geggjaður sigur, risa sigur og lífsnauðsynlegur," sagði Gunnar Magnús.
„Þetta hefur vonandi allt að segja upp á framhaldið, sjálstraust að ná loksins í langþráðan sigur. Það bar þess merki að við vorum einum fleiri en áttum samt undir högg að sækja undir lokin, það er kannski lýsandi fyrir lið sem er ekki búið að vinna leik í langan tíma. Við vorum að reyna halda fengnum hlut, koma boltanum í burtu og mikill léttir að klára þetta í viðburðarríkum leik, svo vægt sé til orða tekið."
Stíluðu á liðsandann - Birgitta færir liðinu nýja möguleika
Keflavík hafði ekki unnið sigur síðan 19. júní gegn Tindastól á heimavelli. Liðið hafði tapað sex leikjum í röð og einungis skorað þrjú mörk í þeim leikjum. Ánægður með að skora tvö mörk á útivelli?
„Já, ég er ánægður með það. Við höfum verið í vandræðum með að skora þannig það var geggjað. Það er mjög erfitt að fara til Vestmannaeyja. Við fórum með nýja nálgun inn í þennan leik, vorum að stíla inn á liðsanda og annað, það virkaði mjög vel."
Birgitta Hallgrímsdóttir kom til ykkar í glugganum og skoraði í gær. „Já, hún er búin að vera virkilega góð hjá okkur, var mjög góð í leiknum í gær og færir okkur nýja möguleika í sóknarleiknum."
Erfitt en skemmtilegt verkefni
Hvernig líst þér á framhaldið eftir þennan sigur?
„Bara mjög vel, við erum búin að fara til Vestmannaeyja og ná í þrjú stig. Við eigum eftir að fara til Akureyrar og á Sauðárkrók. Svo eigum við eftir að fá Val og Breiðablik í heimsókn. Þetta kannski hljómar ekki vel en þetta er bara rosalega spennandi verkefni framundan og gaman að fá að taka þátt í því. Það er barátta framundan og það er skemmtilegra að taka þátt í svona baráttu heldur en að vera í miðjumoði og vera ekki að keppa að neinu. Við tökum þessu sem alvöru áskorun og þetta verður bara skemmtilegt."
Tilviljunarkennd dómgæsla - Þorði dómarinn ekki að lyfta rauðu?
Snúum okkur núna að atvikinu þegar Liana Hinds fékk gula spjaldið á 84. mínútu. Hvernig horfir það við þér?
„Þetta var kannski í takt bara við dómgæsluna, hún var dálítið tilviljunakennd. Ég held að dómarinn hafi einfaldlega ekki haft hug í sér, búin að senda markmanninn þeirra út af fyrr í leiknum. Það atvik var líka mjög undarlegt, að Guðný hafi bara fengið gult (og svo rautt) fyrir það, því hún var búin að fá gult á undan. Okkar leikmaður var komin í gegn og hún var bara keyrð niður. Hann hafði ekki hugrekki í sér þar til að setja beint rautt spjald og þarna í seinna tilvikinu er þetta með ólíkindum í rauninni."
„Hann gaf leikmanni ÍBV (Liönu Hinds) gult spjald og hlýtur því að hafa séð eitthvað. Nú er ég búin að sjá þetta á myndbandi og þetta er nánast líkamsárás."
Á ekki að sjást á fótboltavelli
Hvernig lýsir þinn leikmaður þessu, gerðist eitthvað þarna á undan?
„Nei, minn leikmaður fer af krafti í návígi, fer í bakið á Liönu og hann dæmir aukaspyrnu minn leikmann. Þá í pirringskasti bregst leikmaður ÍBV svona við. Pirringsstigið hefur orðið eitthvað hátt, það var lítið eftir af leiknum. Hún hefur gleymt sér þarna í eitt augnablik. Svona á náttúrulega ekki að sjást á fótboltavelli."
„Ég veit ekki hvernig verklagsreglur eru verðandi viðurlög við svona atvikum sem sjást á myndbandi. Mér þætti með ólíkindum ef hún sleppur við það að fara í leikbann. Það á enginn leikmaður að komast upp með svona."
Vorkennir Guðnýju sem fékk aftur rautt spjald
Þú komst inn á þetta atvik þegar Guðný fékk ekki beint rautt í seinna atvikinu. „Ég áttaði mig ekki á því fyrr en þá að hún hafði fengið gult spjald þarna á undan. Mér fannst með hreinum ólíkindum þegar ég sá fyrst gult spjald fara á loft en svo fylgdi rauða á eftir. Stigin féllu með okkur og það er fyrri öllu."
Kom það þér á óvart að Guðný var í marki ÍBV í leiknum?
„Nei, ég átti von á því. Við þjálfararnir vorum einmitt að leiða líkum að því hvernig byrjunarliðið yrði. Það kom mér ekki á óvart að Guðný var í markinu. Hún stóð sig mjög vel gegn Val þegar Auður mátti ekki spila og svo var hún rosalega flott með Selfossi í sumar. Mér fannst það mjög eðlilegt að hún yrði sett í markið, mér hefði þótt hitt óeðlilegt."
„Maður vorkennir henni svolítið, þetta er í annað skiptið í sumar sem hún fær rautt spjald og þetta svipar til fyrra atvikisins þegar hún var með Selfossi," sagði Gunnar Magnús að lokum.
Athugasemdir