Þorleifur Úlfarsson var fyrir rúmum mánuði síðan valinn til Houston Dynamo í nýliðavali bandarísku MLS-deildarinnar.
Þorleifur, sem er 21 árs sóknarmaður, var samningsbundinn Breiðabliki en hefur nú fengið félagaskipti til Bandaríkjanna.
Þorleifur, sem er 21 árs sóknarmaður, var samningsbundinn Breiðabliki en hefur nú fengið félagaskipti til Bandaríkjanna.
Fréttaritari var forvitinn hvort Blikar ættu rétt á einhverjum bótum, frá annað hvort Dynamo eða MLS-deildinni, þar sem leikmaðurinn er bæði uppalinn og var samningsbundinn félaginu.
„Það eru engar greiðslur sem fara á milli. Ég er enginn sérfræðingur í þessu en þetta virkar þannig að Þorleifur gerir samning við MLS áður en nýliðavalið fer fram. Það var verið að ganga frá félagaskiptum núna en hann var löngu búinn að fá pappíra um að honum væri frjálst að fara í nýliðavalið," sagði Sigurður Hlíðar Rúnarsson, deildarstjóri knattspyrnudeildar Breiðabliks.
Breiðablik þurfti að gefa grænt ljós á að Þorleifur færi í nýliðavalið. „Þetta er frábært tækifæri fyrir hann sem við vildum ekki standa í vegi fyrir," sagði Sigurður.
Athugasemdir