Kieran Tierney, leikmaður Arsenal, er á leið til Celtic en hann hefur samþykkt að ganga til liðs við félagið næsta sumar þegar samningur hans við Arsenal rennur út.
Celtic er í viðræðum við Arsenal um að fá hann á láni áður en janúarglugginn lokar.
Skoska félagið hefur sent vinstri bakvörðinn Alex Valle til baka úr láni til Barcelona en hann er á leið til Como á Ítalíu.
Tierney er uppalinn hjá Celtic en hann gekk til liðs við Arsenal árið 2019. Hann hefur leikið 129 leiki fyrir Arsenal. Hann var sendur á lán til Real Sociedad á síðustu leiktíð en hann hefur komið við sögu í fimm leikjum í öllum keppnum á þessari leiktíð.
Athugasemdir