Það var nóg að gerast í fjórðu umferð Pepsi-deildarinnar og nú valnefnd Fótbolta.net búin að funda um hverjir stóðu sig best í umferðinni og komast í lið umferðarinnar að þessu sinni.
Þjálfara umferðarinar völdum við Ólaf Kristjánsson þjálfara FH sem tók erfiðar ákvarðanir í liðsvali með því að bekkja Kristinn Steindórsson og Geoffrey Castillion á fimmtudaginn og treysta á unga menn. Það skilaði góðum 3-1 sigri í hús gegn KA. Hann á líka tvo leikmenn í liði umferðarinnar þá Steven Lennon sem er með mark að meðaltali í leikjunum fjórum og hinn 17 ára Egil Darra Makan.
Fylkismaðurinn Ragnar Bragi Sveinsson skoraði kolólöglegt mark í 2-1 sigri á ÍBV á fimmtudaginn en stóð sig virkilega vel í leiknum og komst verðskuldað í lið umferðarinnar.
Svo við færum okkur yfir í föstudagsleikina þá eru þrír leikmenn úr stórleik Vals og Stjörnunnar sem lauk með 2-2 jafntefli. Eiður Aron Sigurbjörnsson varnarmaður Vals erí liðin sem og Eyjólfur Héðinsson og að sjálfsögðu Hilmar Árni Halldórsson sem skoraði.
Grindavík er komið á flug að nýju og vann 1-0 sigur á Víkingum. Þeir eiga flesta fulltrú aí liði umferðarinnar að þessu sinni. Markvörðurinn Kristian Jajaolo er aðra umferðina í röð í liði umferðarinnar og tekur með sér miðvörðinn Björn Berg Bryde og miðjumanninn Aron Jóhannsson sem var frábær í leiknum.
Úr 1-1 jafntefli KR og Breiðabliks kemur svo Óskar Örn Hauksson í lið umferðarinnar og síðasti maðurinn í liðið er Almarr Ormarsson sem skoraði glæsilegt 2-1 sigurmark Fjölnis gegn Keflavík.
Sjá einnig:
Úrvalslið 3. umferðar
Úrvalslið 2. umferðar
Úrvalslið 1. umferðar
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir