Það stefnir í að Bournemouth slái Everton úr leik í enska deildabikarnum í kvöld en liðið er með tveggja marka forystu þegar rúmur hálftími er til leiksloka.
Jamal Lowe kom liðinu yfir í fyrri hállfeik og Bournemouth nýtti sér slæm mistök í vörn Everton í upphafi síðari hálfleik og Junior Stanislas bætti öðru markinu við í upphafi síðari hálfleiks.
Síðara markið var ansi vont fyrir Everton þar sem Asmir Begovic átti einfalda sendingu á Mason Holgate sem rann í blautu grasinu og Ryan Christie náði boltanum. Hann sendi boltann inn í teig á Lowe sem kom boltanum á Stanislas sem skoraði.
Stanislas lagði einmitt upp markið fyrir Lowe.
Athugasemdir