Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 08. nóvember 2022 18:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Telma Steindórs riftir við KR - Á leið til Noregs á reynslu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Telma Steindórsdóttir hefur rift samningi sínum við KR samkvæmt heimildum Fóbolta.net.

Telma er sautján ára gömul og lék átta leiki með KR í deildinni í sumar. KR féll úr Bestu deildinni og ákvað Telma að segja upp samningi sínum við félagið.

Telma kom til KR frá Danmörku um mitt tímabil - eftir að hafa leikið með KH og yngri flokkum Vals síðustu ár - og skrifaði undir samning sem átti að gilda út næsta tímabil. Telma lék sem miðvörður og vinstri bakvörður hjá KR.

Hún á að baki alls fimm leiki með U16 og U17 landsliðum Íslands. Telma mun í næstu viku fara til æfinga hjá norska félaginu Lilleström (LSK) sem endaði í sjöunda sæti norsku deildarinnar á tímabilinu.

Annar leikmaður sem lék með KR í sumar verður einnig með í för þegar Telma fer til Noregs. Það er Lilja Lív Margrétardóttir sem lék á láni frá Gróttu seinni hluta tímabilsins.
Athugasemdir
banner
banner