Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 12. nóvember 2022 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Rooney: Vonandi fer Bellingham ekki til Man City eða Liverpool
Mynd: EPA

Jude Bellingham er einn efnilegasti leikmaður heims í dag en þessi 19 ára gamli Englendingur hefur verið orðaður við mörg af sterkustu liðum heims.


Hann leikur með Dortmund í Þýskalandi en hann hefur verið orðaður við stærstu liðin á Englandi. Wayne Rooney, fyrrum leikmaður Manchester United var á dögunum spurður hvort United ætti að reyna næla í leikmanninn.

„Vonandi. Ég vona að hann fari ekki til Liverpool eða Man City," sagði Rooney.

„Ég er viss um að þeir séu að vinna sína vinnu, hann er örugglega heitasta ungstirnið í heimsfótboltanum núna. Ég er viss um að United horfi til hans. Ég veit að þeir reyndu að ná í hann fyrir nokkrum árum svo ég vona það. Hann er leikmaður sem United þyrfti á að halda," sagði Rooney.

Bellingham er í landsliðshóp Englands sem fer á HM í Katar.


Athugasemdir
banner
banner
banner