Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 12. nóvember 2022 11:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Var að undirbúa leik gegn Stoke en spilar nú gegn Liverpool
Mynd: Getty Images

Nathan Jones stýrir Southampton í fyrsta sinn í dag þegar liðið tekur á móti Liverpool.


Jones var spenntur að fá að mæta Klopp en hann verður fyrir vonbrigðum þar sem hann var dæmdur í bann í gær.

„Maður verður að bera mikla virðingu fyrir því sem Klopp gerir. Ég er spenntur að mæta honum en ég veit að það verður erfitt. Hann er einn af bestu þjálfurum í heimi, það er reynslan úr úrvalsdeildinni," sagði Jones.

Hann er ekki búinn að vera lengi við stjórnvölin en hann ætlast til þess að leikmennirnir geri einföldu hlutina rétt. Svo hefur hann lengri tíma til að undirbúa liðið þegar HM hefst.

„Þetta er æðislegt fjölskyldufélag. Þetta hefur verið alveg svakaleg vika því á mánudaginn þegar ég heyrði af áhuga var ég að undirbúa útileik gegn Stoke. Ég var að reyna halda leikmönnum á tánum og sjálfum mér. Þetta hefur verið klikkuð vika en ég er ánægður með að vera hér og hlakka til að vinna með leikmönnunum," sagði Jones að lokum.


Athugasemdir
banner
banner
banner