Liana Hinds lék allan leikinn í liði ÍBV er Eyjakonur töpuðu á heimavelli gegn fallbaráttuliði Keflavíkur.
Undir lok leiks var Keflavík einu marki yfir og leikmanni fleiri og var Liana orðin pirruð. Hún sló þá í Arndísi Snjólaugu Ingvarsdóttur, leikmann Keflavíkur, sem féll til jarðar.
Óli Njáll Ingólfsson, dómari leiksins, sá ekki ástæðu til að gefa rautt spjald þó hann myndi líklega skipta um skoðun með hjálp VAR.
Liana fékk að klára leikinn en það sakaði ekki fyrir Keflvíkinga því nýliðarnir fengu stigin þrjú og komu sér af botni deildarinnar.
ÍBV er fjórum stigum fyrir ofan fallsvæðið þegar fjórar umferðir eru eftir af tímabilinu.
Lestu um leikinn
Athugasemdir