Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   þri 18. október 2022 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tilfinningarnar báru Higuain ofurliði
Gonzalo Higuain.
Gonzalo Higuain.
Mynd: Getty Images
Argentínumaðurinn Gonzalo Higuain er búinn að leika sinn síðasta leik á fótboltaferlinum.

Hann hefur átt afar farsælan feril með hinum ýmsu félagsliðum og argentínska landsliðinu.

Higuain spilaði allan leikinn í gærkvöldi þegar Inter Miami tapaði 3-0 fyrir New York City FC.

Fjölskyldufaðirinn Higuain telur þetta vera komið gott og ætlar að einbeita sér að því að njóta með fjölskyldunni. Hann mun þó sakna fótboltans.

Higuain byrjaði ferilinn hjá River Plate og lék svo fyrir Real Madrid, Napoli, Juventus, Milan og Chelsea áður en hann flutti til Miami.

Tilfinningarnar báru hann ofurliði eftir að flautað var til leiksloka eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner