Aston Villa og Man Utd gætu skipst á leikmönnum - Onana falur fyrir 20 milljónir punda - Isak fer ekki frá Newcastle
Kristinn Aron: KR mikið betra en fyrir ári síðan
Óskar Hrafn: Framtíðin er sannarlega björt í Vesturbænum
Heimir: Þá missti hann bara tökin á leiknum
Már Ægis: Miklu betra að vera hérna heima
Rúnar: Helvítið hann Kristján Finnbogason þekkir allar vítaskyttur á landinu
Siggi Höskulds: Einhver mesti markaskorari sem ég hef séð í yngri flokkum
Fjórir leikmenn ÍR í páskafríi erlendis - „Með algjöru leyfi frá okkur"
Peter Jones með sitt fyrsta meistaraflokksmark: Þetta kemur ekki frá pabba
Halli Hróðmars: Mjög svekktur að hafa ekki getað spilað í Grindavík í dag
Adam Páls: Maður þarf að þroskast líka sem persóna
Alexander Rafn: Geðveikt að fá að læra af þessum leikmönnum
Eggert Gunnþór: Ríkjandi bikarmeistarar og við vissum alltaf að þetta yrði erfitt
Keppni sem okkur þykir vænt um - „Stefnum bara á Laugardalsvöll"
Jakob Gunnar skoraði gegn gömlu félögunum - „Skrítið en mjög skemmtilegt"
Hallgrímur Mar um innkomu Römer: Eins gott og það gat verið
Viktor Elmar: Er flottur leikmaður, þó ég segi sjálfur frá
Gunnar Már um fyrstu mánuðina: Þetta hefur verið brekka
Dóri Árna um Damir: Innan við eitt prósent líkur á því
Rúnar Páll: Ég ætlaði að taka mér pásu frá þjálfun
Haukur Andri: Maður ætlar sér klárlega aftur út
   fim 25. ágúst 2022 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Allt er þegar þrennt er hjá Ása? - „Vonandi getur maður nýtt sér það"
Leikur sem allir vilja komast í
Leikur sem allir vilja komast í
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á laugardag mætast Breiðablik og Valur í úrslitaleik í Mjólkurbikar kvenna. Breiðablik er ríkjandi bikarmeistari og Valur er að fara í sinn fyrsta bikarúrslitaleik í tíu ár.

Ásmundur Arnarsson, þjálfari Breiðabliks, ræddi við Fótbolta.net um bikarúrslitaleikinn.

„Mér líst vel á þetta verkefni. Þetta er auðvitað leikur sem allir vilja komast í, stærsti leikur á hverju tímabili. Frábært að vera komin í þann leik og spennandi verkefni að spila við Val hér á Laugardalsvelli," sagði Ási.

„Stígur ekki allt saman aðeins upp við að það sé bikarúrslitaleikur? Aðeins meiri umgjörð og allt það. Já það er kannski pínu öðruvísi, þetta er auðvitað bara einn leikur, bikar í boði og allt undir. Það stækkar leikinn, stækkar verkefnið og gerir þetta bara skemmtilegra."

„Við reynum að haga undirbúningi sem næst venjulegum leik. Það er ekkert mikið sem verður öðruvísi."


Ási er á leið inn í sinn þriðja úrslitaleik í bikarnum á ferlinum en hann fór tvisvar með karlalið Fjölnis í úrslitaleik á fyrsta áratugi aldarinnar. Fjölnir tapaði gegn FH 2007 og KR 2008. Getur hann tekið einhverja reynslu úr þeim leikjum?

„Vonandi, vonandi hefur maður einhverja reynslu úr því og getur nýtt sér það og leikmannahópurinn hefur einhverja reynslu úr svona leikjum. Við þurfum að reyna kreista út alla þá reynslu sem við höfum til þess að nýta okkur á þessum degi."

„Ég held að það sé svona að byrja byggjast upp og vonandi verður það passleg spenna. Það var kannski spennufall í síðustu viku þegar við náðum ekki að fara áfram í Meistaradeildinni, svo fer spennan smám saman að byggjast upp fyrir þennan leik og verður vonandi passlegt spennustig á laugardag,"
sagði Ási.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum að ofan.

Leikurinn hefst klukkan 16:00 á laugardag og fer fram á Laugardalsvelli. Miðasala fyrir leikinn er á tix.is.
Athugasemdir
banner