Nýliðaval fyrir tímabilið 2025 í MLS deildinni var haldið í desember og fyrir það var Úlfur Ágúst Björnsson talinn mjög líklegur til þess að verða valinn. Ekkert varð úr því og er það líklega vegna þess að félög þorðu ekki að taka sénsinn á því að velja leikmann sem var samningsbundinn öðru félagi, FH í þessu tilviki, af ótta við að þurfa að borga háar bætur fyrir leikmanninn.
FH-ingurinn Brynjar Benediktsson, eigandi Soccer & Education USA, sagði frá því í að umboðsmaður Úlfs hefði ekki komið því til skila til félaganna í MLS að FH myndi ekki krefjast hárra uppeldisbóta fyrir Úlf sem er í háskólanámi við Duke háskólann í Bandaríkjunum.
FH-ingurinn Brynjar Benediktsson, eigandi Soccer & Education USA, sagði frá því í að umboðsmaður Úlfs hefði ekki komið því til skila til félaganna í MLS að FH myndi ekki krefjast hárra uppeldisbóta fyrir Úlf sem er í háskólanámi við Duke háskólann í Bandaríkjunum.
Fótbolti.net ræddi við Davíð Þór Viðarsson, yfirmann fótboltamála hjá FH, og var hann spurður út í Úlf.
Kom það þér á óvart að Úlfur var ekki valinn?
„Já, það kom mér á óvart, en svo hefur maður heyrt að það hafi að einhverju leyti verið af því að eitthvað félag, sem valdi leikmann í fyrra, þurfti síðan að borga uppeldisbætur fyrir leikmanninn án þess að hafa vitað af því. Það hafi verið smá hræðsla hjá þessum félögum. Úlfur var ekkert eini leikmaðurinn sem var ofarlega á listum en var svo ekki valinn. Eins og með Úlf voru það leikmenn sem höfðu verið á samningum hjá öðrum félögum. Það er væntanlega ástæðan fyrir þessu. Það er svolítið sérstakt kerfi í Bandaríkjunum, eins og með nýliðavalið, ólíkt því sem við erum vön hérna í Evrópu. En ég held að það dyljist engum að Úlfur Ágúst er meira en nógu öflugur til þess að vera valinn í nýliðavali MLS."
Á síðasta ári þurfti Minnesota United að semja við Villarreal um greiðslu á uppeldisbótum áður en Hugo Bacharach gat skrifað undir samning við félagið. Það ferli tók nokkra mánuði.
Úlfur er uppalinn hjá FH og er samningsbundinn félaginu út komandi tímabil. Davíð segir að von sé á Úlfi til landsins frá Bandaríkjunum í síðustu vikunni í apríl. Hann mun því missa af fyrstu leikjunum í Bestu deildinni. Það er ekki útilokað að hann verið valinn í nýliðavalinu fyrir tímabilið 2026 í MLS deildinni.
Þorleifur Úlfarsson er síðasti Íslendingurinn til þess að vera valinn í nýliðavali MLS-deildarinnar og fjölluðum við hér á Fótbolti.net um að Blikar hefðu ekki fengið neina greiðslu frá Houston Dynamo fyrir Þorleif.
Athugasemdir