Leiknir R. hefur fengið miðjumanninn Andra Fannar Stefánsson á láni frá Val út tímabilið.
Andri Fannar hefur einungis komið við sögu í tveimur leikjum í Pepsi-deildinni í sumar.
Þessi 23 ára gamli leikmaður er uppalinn hjá KA en hann hefur leikið með Val síðan árið 2011.
Andri Fannar hefur einungis komið við sögu í tveimur leikjum í Pepsi-deildinni í sumar.
Þessi 23 ára gamli leikmaður er uppalinn hjá KA en hann hefur leikið með Val síðan árið 2011.
Andri Fannar hefur samtals skorað 11 mörk í 120 deildar og bikarleikjum á ferli sínum.
Í fyrra spilaði hann alla 22 leiki Vals í Pepsi-deildinni.
Leiknismenn eru á toppnum í 1. deild karla en næsti leikur liðsins er gegn BÍ/Bolungarvík á Ísafirði á laugardag.
Athugasemdir