Hinn efnilegi Árni Salvar Heimisson, sem spilaði þrettán leiki með ÍA í efstu deild í sumar, er farinn til Vendsyssel á reynslu.
Vendsyssel leikur í næstefstu deild í Danmörku og stefnir á að koma sér upp í efstu deild.
Árni Salvar er 19 ára gamall og nýlega búinn að skrifa undir þriggja ára samning við ÍA. Hann mun æfa með Vendsyssel á næstunni og félagið mun svo sjá til hvort gert verði kauptilboð.
Jón Dagur Þorsteinsson og Mikael Anderson eru dæmi um íslenska leikmenn sem hafa verið á mála hjá Vendsyssel.
„Árni mun æfa með liðinu fram í næstu viku. Við óskum Árna alls hins besta í þessu verkefni," segir meðal annars í færslu frá ÍA.
Athugasemdir