Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 07. nóvember 2022 21:51
Ívan Guðjón Baldursson
Enski bikarinn: Ipswich vann í seinni hálfleik
Mynd: Getty Images

Bracknell 0 - 3 Ipswich
0-1 D. Bayliss ('66, sjálfsmark)
0-2 F. Ladapo ('73)
0-3 P. Camara ('81)


Ipswich er komið áfram í næstu umferð enska FA bikarsins eftir sigur á útivelli gegn Bracknell.

Ipswich leikur í ensku C-deildinni á meðan Bracknell er í utandeildinni.

Staðan var markalaus í leikhlé en gestirnir frá Ipswich tóku völdin í síðari hálfleik og skópu þriggja marka sigur.

Ipswich mætir Buxton í næstu umferð en það eru enn nokkrar umferðir í að úrvalsdeildarfélög komi inn í keppnina.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner