Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mán 07. nóvember 2022 16:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Glódís á sínum stað í liði umferðarinnar
Glódís Perla Viggósdóttir.
Glódís Perla Viggósdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðskona, er í liði sjöundu umferðar í þýsku úrvalsdeildinni hjá tímaritinu ELFEN.

Glódís var á skotskónum um liðna helgi. Hún gerði eitt af mörkum Bayern í þægilegum 3-0 sigri á Freiburg.

Glódís er klárlega með betri miðvörðum deildarinnar. Bayern er í þriðja sæti þýsku deildarinnar eftir leiki helgarinnar með 16 stig í sjö leikjum.

Hægt er að sjá lið helgarinnar hér fyrir neðan og einnig er hægt að hlusta á hlaðvarp með Ásgerði Stefaníu Baldursdóttir í spilaranum að neðan. Þar barst Glódís í tal.


Adda fer yfir glæstan feril - Einn sigursælasti leikmaður sögunnar
Athugasemdir
banner
banner
banner