Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 07. nóvember 2022 23:40
Ívan Guðjón Baldursson
Marteinn Már áfram hjá KFA næstu tvö tímabil
Mynd: Leiknir F

KFA, knattspyrnufélag Austfjarða, er búið að semja við Martein Má Sverrisson til tveggja ára.


Þetta eru mikil gleðitíðindi fyrir Austfirðinga enda er Marteinn Már lykilmaður í liðinu. Hann átti stóran þátt í að bjarga KFA frá falli úr 2. deild í sumar og var valinn besti leikmaður elleftu umferðar deildartímabilsins.

Marteinn Már er 23 ára gamall og hefur alla sína tíð spilað fótbolta á Austfjörðum. Hann var fyrst hjá Leikni Fáskrúðsfirði sem sameinaðist svo í KFA.

Marteinn skoraði sex mörk í 21 deildarleik í sumar eftir að hafa gert sex mörk í 20 deildarleikjum með Leikni í fyrra.


Athugasemdir
banner
banner