Kjartan Henry Finnbogason, leikmaður KR í Pepsi-deild karla, hefur svarað fyrir atvikið sem átti sér stað á Þórsvelli á fimmtudag er hann virtist stíga á Atla Jens Albertsson, leikmann Þórs.
Sýnt var frá atvikum úr leik Þórs og KR í Pepsi-deildinni þar sem Þór vann KR með tveimur mörkum gegn egnu.
Þar sést afar umdeilt atvik en Kjartan Henry virtist þá stíga á Atla Jens Albertsson í liði Þórsara.
Kjartan var fljótur sér til varnar á Twitter en þar segir hann fólki að spyrja Atla endilega að því hvað gerðist.
,,Endilega spyrjið Atla Jens hvort að ég hafi stigið viljandi á hann og hvort að hann hafi þurft að fara af velli vegna þess," sagði Kjartan á Twitter.
Athugasemdir