Mainoo fær nýjan samning - Goretzka og Gomes orðaðir við Man Utd - Bremer og Kerkez við Liverpool
   þri 28. nóvember 2017 13:04
Elvar Geir Magnússon
Ísland fær allt ókeypis í Indónesíu - Tveir leikir spilaðir
Ekki er um opinbera landsleikjadaga að ræða svo ungir leikmenn munu fá tækifæri til að sanna sig í Indónesíu.
Ekki er um opinbera landsleikjadaga að ræða svo ungir leikmenn munu fá tækifæri til að sanna sig í Indónesíu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimir Hallgrímsson.
Heimir Hallgrímsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrr í þessum mánuði var opinberað að stefnt sé að því að íslenska landsliðið fari til Indónesíu í janúar.

Engir alþjóðlegir leikdagar eru í janúar og því er ljóst að margir fastamenn verða fjarverandi í íslenska liðinu. Margir leikmenn sem hafa lítið verið í hópnum fá tækifæri líkt og á æfingamóti í Kína í janúar á þessu ári.

„Menn spyrja sig af hverju við erum að fara svona langt í burtu. Það er eftirsóknarvert að spila til Íslands og þetta er boðsferð svo allt er frítt; Flug, gisting, matur og æfingaaðstaða. Við þiggjum það með þökkum," segir Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari í viðtali við Fótbolta.net.

„Þetta er hlýtt land og það er fínt að vera með óreyndari hóp á svona stað þar sem við getum eytt góðum tíma í æfingar, spjall og kannski á aðeins rólegra tempói. Á margan hátt er þetta frábær ferð þó ferðalagið sé langt."

Hvað vill Heimir fá út úr verkefni sem þessu?

„Svipað og gerðist þegar við fórum fyrir EM. Þarna eru strákar sem við vitum að geta komist í landsliðshópinn. Þetta eru yfirleitt yngri leikmenn og leikmenn sem hafa fengið minni spiltíma. Við viljum að leikmenn sem töldu að þeir ættu ekki möguleika á að fara til Rússlands sjái að það er möguleiki. Það er hálft ár þar til valið verður í lokakeppnina og það getur margt gerst á þeim tíma, sérstaklega hjá yngri leikmönnum. Menn geta farið á flug á styttri tíma en það," segir Heimir.

„Við viljum fá að kynnast mönnum inni í umhverfinu okkar, hvernig þeir finni sig í liðsheildinni og hversu góðir karakterar þeir eru. Svo er það þeirra að svara því hvað þeir gera á þessum tíma eftir þetta verkefni. Hálft ár er langur tími."

Í þessu landsliðsverkefni verða spilaðir tveir vináttulandsleikir við Indónesíu. Indónesía er að undirbúa U23 lið sitt fyrr Asíuleikana næsta sumar. Liðið sem leikur gegn Íslandi verður því að mestu eða öllu leyti skipað leikmönnum 23 ára og yngri.

Smelltu hér til að hlusta á viðtalið við Heimi í heild sinni
Athugasemdir
banner
banner
banner