Endurkoma á Trafford? - Liverpool vill Eze - Pogba til Bandaríkjanna - Duran til Madríd?
   sun 06. október 2024 09:40
Elvar Geir Magnússon
„Að vera með hugmyndaflug í þetta“ - Sjáðu mörkin úr sigri Vestra gegn Fram
Andri Rúnar er að berjast fyrir félagið sitt.
Andri Rúnar er að berjast fyrir félagið sitt.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Sóknarmaðurinn Andri Rúnar Bjarnason skoraði þrennu og átti stoðsendingu að auki þegar Vestri vann 4-2 sigur gegn Fram í gær og styrkti stöðu sína í baráttunni um að forðast fall úr Bestu deildinni.

Andri Rúnar hefur verið magnaður í úrslitakeppninni og skorað í öllum þremur leikjunum. Vestri er nú fjórum stigum fyrir ofan fallsætin en HK og Fylkir sem eru neðst mætast innbyrðis í dag.

Lestu um leikinn: Fram 2 -  4 Vestri

„Já hann var stórkostlegur í dag og bara sést líka í marki númer tvö að hann er fullur sjálfstrausts og um leið og Andri byrjar að skora þá hættir hann því ekki og bara ofboðslega góð frammistaða frá honum og sýnir líka að þetta er félagið hans, hann er að berjast fyrir félagið sitt og hann leiddi svolítið vagninn hjá okkur í dag,“ sagði Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra, eftir leikinn í gær.

Mörkin úr leiknum má sjá hér að neðan en annað mark Andra hefur vakið sérstaka athygli en þar skaut hann boltanum yfir markvörð Fram úr afskaplega þröngri stöðu.

„Andri er algjört ólíkindatól og það sem honum dettur í hug er auðvitað stútfullt af gæðum og að hann hafi hugmynd um að reyna að skora úr þessu færi finnst mér segja margt um hann sem leikmann, það er að segja gæðalega séð og bara að vera með hugmyndaflugið í þetta, mér fannst það stórkostlegt,“ sagði Davíð.



„Stórsigur fyrir okkur, sá stærsti í sumar það er klárt“
Besta-deild karla - Neðri hluti
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KA 24 8 7 9 38 - 42 -4 31
2.    Fram 25 8 6 11 36 - 43 -7 30
3.    KR 24 6 7 11 44 - 49 -5 25
4.    Vestri 25 6 7 12 30 - 48 -18 25
5.    HK 24 6 3 15 30 - 61 -31 21
6.    Fylkir 24 4 5 15 27 - 56 -29 17
Athugasemdir
banner
banner