Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 08. nóvember 2022 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Firmino svekktur: Þakklátur guði að hafa leyft mér að upplifa þennan draum
Roberto Firmino og Gabriel Jesus
Roberto Firmino og Gabriel Jesus
Mynd: Getty Images

Brasilíski framherjinn Roberto Firmino er ekki á leið á HM í Katar en það kom í ljós þegar hópurinn var tilkynntur í gær.


Firmino hefur nú tjáð sig um valið á Instagram en hann er að vonum svekktur.

„Ég þakka fyrir öll fallegu skilaboðin sem ég hef fengið. HM er draumur fyrir alla leikmenn og það er ekkert öðruvísi hjá mér. Í gær fóru hlutirnir ekki eins og ég var búinn að ímynda mér eða dreymt um allt mitt líf en ég get horft til baka og verið þakklátur guði að hafa leyft mér að lifa þennan draum," skrifaði Firmino.

Firmino óskar þeim sem voru valdir til hamingju með sætið.

„Það var, er, og mun alltaf vera heiður að verja landið mitt," skrifaði Firmino.

Alisson og Fabinho, samlandar hans og liðsfélagar hjá Liverpool eru báðir í hópnum.

Sjá einnig:
Sjáðu gleðina sem braust út hjá antony og hans nánustu
Sóknarmaður Atletico í molum eftir að hópurinn var tilkynntur


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner