Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 08. nóvember 2022 13:43
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Vanda segir umræðu síðustu daga stinga sig í hjartað
Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ.
Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Myndin sem Dagný birti á <i>Instagram</i>.
Myndin sem Dagný birti á Instagram.
Mynd: Skjáskot - Instagram
Fyrir utan höfuðstöðvar KSÍ.
Fyrir utan höfuðstöðvar KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, hefur ritað pistil sem hún birtir á persónulegri Facebook-síðu sinni.

Hún ritar pistilinn í kjölfarið á umræðu síðustu daga. Landsliðskonur hafa gagnrýnt að ekki sé samræmi í viðurkenningum KSÍ til landsliðsfólks.

Dagný Brynjarsdóttir benti á að hún og Glódís Perla Viggósdóttir hafi ekki fengið sérmerkta treyju þegar þær voru búnar að ná 100 landsleikjum. Málið hefur vakið mikla athygli.

Í kjölfarið steig Margrét Lára Viðarsdóttir fram og sagðist aldrei hafa fengið tækifæri til að kveðja almennilega þegar hún lagði landsliðsskóna á hilluna.

Vanda segir að þetta mál stingi sig í hjartastað þar sem hún hafi barist fyrir vægi kvennaboltans frá því hún man eftir sér.

„Ég tek umræðu síðustu daga mjög nærri mér, enda hef ég, frá því að ég steig mín fyrstu skref í fótbolta, barist fyrir vægi kvennaknattspyrnu. Nú eftir að ég kom til KSÍ er þessi barátta ekki bara á Íslandi heldur einnig í Evrópu. Í áratugi hef ég verið í jafnréttisbaráttu og þau sem mig þekkja vita að ég vil síst að þau skilaboð séu í knattspyrnunni að konur skipti síður máli. Það stingur mig í hjartað," segir Vanda.

Hægt er að lesa pistil formannsins í heild sinni hér fyrir neðan. Hún segir þar meðal annars að sú vinna sé í gangi að fara yfir verkferla um það hvenær og hvernig á að heiðra leikmenn sem leggja landsliðskóna á hilluna.

Pistill Vöndu
Ég tek umræðu síðustu daga mjög nærri mér, enda hef ég, frá því að ég steig mín fyrstu skref í fótbolta, barist fyrir vægi kvennaknattspyrnu. Nú eftir að ég kom til KSÍ er þessi barátta ekki bara á Íslandi heldur einnig í Evrópu. Í áratugi hef ég verið í jafnréttisbaráttu og þau sem mig þekkja vita að ég vil síst að þau skilaboð séu í knattspyrnunni að konur skipti síður máli. Það stingur mig í hjartað.

Mig langar því að útskýra.

KSÍ fylgir reglugerðum sínum um að leikmenn fái heiðursviðurkenningar fyrir 50 og 100 leiki. Hefð er fyrir því að leikmenn sem ná 100 leikjum fái málverk sem afhent er á ársþingi eða við önnur hátíðleg tilefni. Ekkert annað er í verkferlum og reglugerðum KSÍ um þessi mál.

En hvað þá með þessar treyjur? Fyrir ári síðan fékk einn starfsmaður úr starfsliði A landsliðs karla þá fínu hugmynd að útbúa treyju fyrir Birki Bjarnason og Birki Má Sævarsson, sem báðir voru komnir með 100 leiki. Það er, eftir því sem ég best veit, í fyrsta skipti sem þetta var gert. Þetta er eitthvað sem hann tók upp hjá sjálfum sér. Skemmtileg hugmynd og flott frumkvæði. Þegar Dagný og Glódís náðu þessum merka áfanga í apríl afhenti ég þeim blóm fyrir leikinn í Serbíu. Sá starfsmaður kvennalandsliðsins sem mun sjá um þetta í framtíðinni var ný tekin til starfa í apríl. Hún vissi ekki af treyjunum hjá A karla. Hefði einhver geta sagt henni þetta? Já vissulega, þar á meðal ég sjálf, því ég var viðstödd í Rúmeníu þegar Birkir og Birkir fengu sínar treyjur. En það fórst einfaldlega fyrir. Klaufalegt? Já, kannski. Skammarlegt? Nei.

KSÍ vinnur markvisst að jafnréttismálum í öllu sínu starfi og mun halda því áfram. Við erum að gera allt sem við getum. Stundum verða mistök á leiðinni í þessum málum sem og öðrum. Því fer fjarri að ætlunin hafi verið að minnka kvennalandsliðið, því þær eiga að sjálfsögðu virðingu skilið fyrir að leggja allt sitt í að spila fyrir land og þjóð. Þá skoðun hef ég alltaf haft og verið í áratugi að berjast fyrir.

Markmið okkar er jafnrétti. Við erum alltaf að stíga skref þar til að ná betri árangri en augljóst er að við þurfum að vera duglegri að miðla því.

Hver er lærdómurinn, tækifærin, hverju ætlum við að breyta?

1. Í vor hófum við að smíða nýjan ramma utan um það hvenær og hvernig á að heiðra leikmenn sem leggja landsliðskóna á hilluna. Við ætlum að setja allt kapp í að klára þá verkferla og bæta.

2. Hugmyndin með 100 leikja treyjuna er góð, við munum innleiða hana sem fastan lið í báðum A landsliðum okkar.

3. Við munum rýna í þá ferla sem fyrir eru og gera endurbætur ef þörf er á.

Svo vil ég að lokum skora á landsliðsfólk að hafa beint samband við okkur ef eitthvað má betur fara. Starfsfólk og stjórnarfólk KSÍ er boðið og búið að hlusta og taka við ábendingum. Það er alltaf hægt að bæta og breyta.

Í þeirri orrahríð sem nú er finnst mér sárast að vegið er að starfsfólki KSÍ, sem vinnur af heilindum, metnaði – oft myrkranna á milli – að framþróun fótboltans á Íslandi. Ég hef aldrei kynnst starfshópi sem helgar sig starfi sínu með sama hætti og þessi frábæri hópur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner