„Þetta þróaðist nákvæmlega eins og við vildum," sagði Bjarni Jóhannsson, þjálfari Vestra, eftir 7-0 sigur liðsins á Tindastóli í lokaumferð 2. deildar karla í dag.
Með sigrinum tryggði Vestri sér sæti í Inkasso-deildinni næsta sumar.
Með sigrinum tryggði Vestri sér sæti í Inkasso-deildinni næsta sumar.
Lestu um leikinn: Vestri 7 - 0 Tindastóll
„Það var ferskleiki yfir liðinu. Að klára þetta á þennan hátt er bara magnað."
„Það var svo mikið í húfi í dag og okkur tókst að vera á jörðinni eftir slæmt tap um síðustu helgi. Þetta var mjög vel gert hjá okkur," sagði Bjarni.
„Það eru allir kátir. Það verður gott slútt í kvöld og það verður mikið stuð fyrir vestan."
Viðtalið við hann í heild sinni má sjá hér að ofan.
Athugasemdir