Varnarmaðurinn þaulreyndi Dan Burn hefur miklar mætur á samherja sínum hjá Newcastle, sænska framherjanum Alexander Isak.
Isak hefur verið funheitur undanfarnar vikur og er kominn með 14 mörk í síðustu 12 leikjum í öllum keppnum. Hann skoraði tvennu í sigri gegn Southampton um helgina og hrósaði Burn honum í hástert að leikslokum.
Isak, sem er 25 ára gamall, hefur verið orðaður við ýmis stórveldi og ætlar Newcastle að bjóða framherjanum nýjan risasamning til að halda honum innan sinna raða.
„Það eru eigendurnir sem munu ákveða hvort hann verði seldur en fyrir okkur sem lið þá er hann algjörlega ómetanlegur. Ég vona að hann haldi áfram að gera vel, en að hann geri ekki alltof vel svo önnur lið kaupi hann ekki frá okkur," sagði Dan Burn.
„Hann er ótrúlega góður leikmaður, maður sér það bara á því hvernig hann hreyfir sig. Ég hef spilað gegn svakalegum leikmönnum á ferlinum en það er enginn sem hreyfir sig eða rekur boltann eins og hann gerir.
„Eins og staðan er í dag þá er Isak líklega einn af bestu framherjum heims. Það er erfitt að verjast honum útaf því hvernig hann hreyfir sig. Hann hreyfir fæturnar mjög hratt á meðan efri hluti líkamans er kyrr."
Athugasemdir