Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   fim 03. nóvember 2022 17:26
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Van Dijk um Martínez: Vita ekki um hvað þau eru að tala
Lisandro Martinez.
Lisandro Martinez.
Mynd: EPA
Virgil van Dijk, miðvörður Liverpool, hefur komið Lisandro Martínez, miðverði erkifjendanna í Manchester United, til varnar.

Martínez var keyptur til Manchester United í sumar frá Ajax í Hollandi. Hann hefur fengið mikið lof að undanförnu en það eru líka margir sem efast um ágæti hans í stöðu miðvarðar í ensku úrvalsdeildinni.

Van Dijk, sem hefur verið besti miðvörður deildarinnar síðustu ár, segir það algjört kjaftæði að Martínez geti ekki leikið stöðuna á Englandi þrátt fyrir að hann sé frekar lágvaxinn í hana.

„Fólk sem talar um Lisandro Martínez og hæð hans, það veit ekki um hvað það er að tala," sagði Van Dijk við Sky Sports.

„Það getur hjálpað að vera aðeins hávaxnari en hann hefur verið að standa sig vel. Þetta eru góð kaup hjá Manchester United og ég ber mikla virðingu fyrir honum."
Enski boltinn - Kaninn keypti sér tíma á Anfield
Athugasemdir
banner
banner
banner