Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 05. nóvember 2022 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Conte skaut á Klopp: Töpuðu titilinum útaf þessu
Mynd: Getty Images

Tottenham fær Liverpool í heimsókn í síðdegisleiknum á sunnudaginn. Jurgen Klopp hefur ekki góðar minningar frá viðreigninni á síðustu leiktíð.


Liðin gerðu 1-1 jafntefli á Anfield í 36. umferð sem varð til þess að Liverpool missti titilinn í hendur Manchester City. Klopp var ekki hrifinn af leikstil Tottenham eftir leik.

„Ég kann ekki að meta svona fótbolta, það er mitt vandamál. Þetta eru heimsklassa leikmenn og þeir eiga að gera meira í leiknum," sagði Klopp á síðustu leiktíð.

Antonio Conte var spurður í aðdraganda leiksins um helgina hvort þessi ummæli Klopp hafi verið vanþakklát.

„Já, en þú mannst að hann tapaði úrvalsdeildartitlinum útaf þessum úrslitum. Ég skil pirringinn, þeir töpuðu titlinum útaf þessu en í staðinn náðum við Meistaradeildarsæti," sagði Conte.


Athugasemdir
banner