Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 06. nóvember 2022 23:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Allegri: Megum ekki halda að við séum búnir að leysa öll vandamál
Mynd: Getty Images

Massimo Allegri, stjóri Juventus var að vonum ánægður með 2-0 sigur liðsins á Inter í ítölsku deildinni í kvöld.


„Það er frábært að vinna Inter. Eftir að við náðum forystunni spiluðum við áfram vel, ég man bara eftir færi frá Lautaro Martinez. Þegar þú spilar svona er erfitt að skora á okkur. Við megum þó ekki halda að við séum búnir að leysa öll vandamál, við verðum að halda áfram," sagði Allegri.

Juventus hefur ekki verið upp á sitt besta á þessari leiktíð en er á góðu skriði í deildinni, sigurinn í kvöld var fjórði sigurinn í röð í deildinni. Liðið fór upp í 5. sæti deildarinnar með sigrinum í kvöld.

Allegri hefur verið undir mikilli pressu á þessari leiktíð en það er eitthvað farið að birta til hjá stórliðinu.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner