Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 06. nóvember 2022 17:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Arteta hæstánægður: Ég elska þennan dreng
Mynd: EPA

Mikel Arteta stjóri Arsenal var að vonum ánægður með sína menn eftir 1-0 sigur liðsins í grannaslagnum gegn Chelsea í dag.


Hann var spurður út í nokkra leikmenn, Gabriel Jesus skoraði ekki í dag en hann var gríðarlega ánægður með vinnuframlagið frá honum.

„Krafturinn og trúin sem hann sendir út í allt liðið er magnað. Það er hans helsti kostur að mínu mati. Hann var frábær í alla staði í dag, hélt boltanum, góðar hreyfingar, bjó til stress hjá andstæðingunum, það tekur okkur upp á næsta stig. Hann skoraði ekki en vann frábærlega fyrir liðið,"

Miðvörðurinn Ben White hefur þurft að leysa hægri bakvarðarstöðuna vegna meiðsla Takehiro Tomiyasu.

„Ég er mjög ánægður með hann, hann er að spila í annarri stöðu, mér finnst hann aðlagast bakvarðarstöðunni vel. Hann tengir vel við leikmennina í kringum sig. Hann vill alltaf vera þarna, hann æfir á hverjum degi, hann spilar við hvaða aðstæður sem er og ég elska þennan dreng," sagði Arteta.


Athugasemdir
banner
banner
banner