Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 06. nóvember 2022 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Arteta: Kominn tími til að vinna úrvalsdeildina
Mynd: EPA

Arsenal hefur spilað frábærlega í ensku úrvalsdeildinni en liðið getur endurheimt toppsætið með sigri í grannaslagnum gegn Chelsea í dag.


Arsenal endaði í 5. sæti á síðustu leiktíð en liðið hefur ekki unnið deildina síðan tímabilið 2003/2004 þegar liðið fór ósigrað í gegnum tímabilið.

„Það er kominn tími til að vinna deildina, það er orðið svo langt síðan, við verðum að vinna fyrir því og við höfum gert það hingað til en það er enn hellingur eftir," sagði Mikel Arteta.

Liðið mætir Chelsea á Stamford Bridge í stórleik helgarinnar í hádeginu í dag.


Athugasemdir
banner
banner